„Tilfinningin er mögnuð," sagði Kaj Leó í Bartalsstovu, leikmaður ÍBV, eftir 1-0 sigur á FH í bikarúrslitaleik í Laugardalnum.
„Ég er stoltur og ánægður að hafa verið hluti af þessu fyrir ÍBV. Þetta er mikill ánægður og ég er gríðarlega ánægður."
„Ég er stoltur og ánægður að hafa verið hluti af þessu fyrir ÍBV. Þetta er mikill ánægður og ég er gríðarlega ánægður."
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 FH
Kaj Leó var að spia á móti sínum gömlu félögum í FH.
„Það er bara plús," sagði hann aðspurður út í það hvernig það hefði verið að vinna FH í úrslitaleiknum. „Við vissum að FH væri gott lið og þeir voru það. Þetta var erfitt, en við unnum."
Hann lagði upp mark ÍBV í leiknum fyrir Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Hann var spurður út í markið.
„Ég reyndi að koma þeim á óvart með því að setja boltann inn strax. Gunnar finnur alltaf lyktina af markinu og hann var á rétta staðnum. Þetta var mjög gott."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir