Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. ágúst 2017 17:10
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Rooney: Að spila fyrir þetta félag skiptir miklu máli fyrir mig
Rooney fagnar marki sínu í dag.
Rooney fagnar marki sínu í dag.
Mynd: Everton - Twitter
Wayne Rooney snéri aftur til Everton í sumar frá Manchester United, hann skoraði í dag sigurmark Everton í 1-0 sigri á Stoke.

Markið sem Rooney skoraði á Goodison Park í dag var ekki bara hans fyrsta mark fyrir Everton síðan árið 2004 heldur einnig hans 199. mark í ensku úrvalsdeildinni.

„Það er mjög sérstakt fyrir mig persónulega að skora á Goodison Park, það gerist ekki mikið betra en það," sagði Rooney.

„Að spila fyrir þetta félag skiptir miklu máli fyrir mig."

Síðast þegar Rooney skoraði fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni lék liðið gegn Leeds, eins og sjá má hér fyrir neðan eru „nokkrir" dagar síðan Rooney skoraði síðast fyrir Everton.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner