Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. ágúst 2018 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Liðsfélagi Gunnhildar minnti á Van Gaal
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Utah Royals er liðið tapaði gegn Seattle Reign í bandarísku kvennadeildinni í gær.

Leikurinn endaði 1-0 og var það Jessica Fishlock sem skoraði sigurmarkið í upphafi seinni hálfleiks.

Eftir tvo sigurleiki í röð var niðurstapan tap fyrir Utah.

Utah er í sjötta sæti deildarinnar með 28 stig úr 21 leik.

Það átti sér stað mjög skondið atvik undir lok leiksins. Rebecce Morros, leikmaður Utah, var orðin pirruð og sakaði hún bandarísku landsliðskonuna Megan Rapinoe um leikaraskap. Hún notaði leikræna tilburði til að lýsa yfir skoðun sinni, minnir eilítið á Louis van Gaal, fyrrum stjóra Manchester United um árið.

Hér að neðan má sjá myndbönd.





Athugasemdir
banner
banner
banner