Liverpool sigraði West Ham örugglega í fyrsta leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Liverpool fór með 4-0 sigur af hólmi.
Sadio Mane skoraði tvö mörk en Mohamed Salah og Daniel Sturridge voru líka á skotskónum.
Um miðjan seinni hálfleikinn lentu tveir leikmenn West Ham, Jack Wilshere og Mark Noble í því að fá skot í punginn. Hver sá sem hefur lent í því veit að það er ekki góð tilfinning.
Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon var lýsa leiknum á Stöð 2 Sport og hann ákvað að bjóða upp á létt grín þegar Wilshere og Noble lágu eftir sárþjáðir.
Hörður talaði þá með háum tón en til að hlusta á það smelltu þá hér.
Smelltu hér til að sjá það þegar Wilshere og Noble meiddust.
Athugasemdir