Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 12. ágúst 2019 23:30
Arnar Helgi Magnússon
Ben Yedder á leið í frönsku úrvalsdeildina - Læknisskoðun á morgun
Mynd: Getty Images
Wissam Ben Yedder mun á morgun gangast undir læknisskoðun hjá franska félaginu Mónakó.

Mónakó borgar 40 milljónir evra fyrir leikmanninn en liðið virkjaði klásúlu í samningi hans er varðar kaupverð.

Bæði PSG og Manchester United eru sögð hafa sett sig í samband við umboðsmann Ben Yedder í sumar en nú er það Mónakó sem virðist vera að klófesta kappann.

Ben Yedder gekk í raðir Sevilla árið 2016 en síðan þá hefur hann skorað 70 mörk fyrir félagið. Hann kom frá Toulouse fyrir einungis níu milljónir punda.

Mónakó var í miklu basli á síðustu leiktíð og náði liðið rétt svo að bjarga sér frá falli. Það er spurning hvort að liðið nái betri árangri á komandi leiktíð með Ben Yedder í sínum röðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner