Wilfried Bony æfir nú með enska D-deildarliðinu Newport County eftir að samningur hans við Swansea rann út í lok júní.
Bony dvaldi í Katar og spilaði undir stjórn Heimis Hallgrímssonar hjá Al Arabi frá janúar og fram í maí. Bony skoraði sjö mörk í níu keppnisleikjum fyrir liðið.
Swansea ákvað síðan að bjóða leikmanninum ekki nýjan samning og er hann því leit að nýju félagi.
„Frábært að fá Bony á æfingar hjá okkur. Hann er mikill fagmaður og setur ný viðmið fyrir strákana. Þeir munu læra mikið af honum," segir stjóri Newport.
Þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn á Englandi sé lokaður má hann semja við lið þar sem að hann er ekki samningsbundinn neinu öðru liði.
Athugasemdir