Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 12. ágúst 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Tekur Moyes við liðinu hans Beckham?
Á leið aftur í boltann?
Á leið aftur í boltann?
Mynd: Getty Images
David Moyes gæti orðið þjálfari Inter Miami sem tekur í fyrsta skipti þátt í MLS-deildinni í Bandaríkjunum á næsta ári.

David Beckham er eigandi Inter Miami en félagið mun ráða sinn fyrsta þjálfara á næstunni.

Moyes hefur verið atvinnulaus síðan hann yfirgaf West Ham vorið 2018 en hann gæti nú verið á leið aftur í boltann.

Gennaro Gattuso var orðaður við Inter Miami fyrr í vikunni en Carlo Ancelotti og Thierry Henry hafa einnig verið orðaðir við þjálfarastöðuna.

Inter Miami tilkynnti í vikunni fyrstu tvo leikmennina í leikmannahópi sínum en það eru Argentínumennirnir ungu Matias Pellegrini og Julian Carranza.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner