Leicester, Wolves, AC Milan og Juventus eru á meðal félaga sem vilja fá Dwight McNeil kantmann Burnley í sínar raðir.
Hinn tvítugi McNeil var í lykilhlutverki hjá Burnley á nýliðnu tímabili þar sem hann lagði upp tíu mörk.
Hinn tvítugi McNeil var í lykilhlutverki hjá Burnley á nýliðnu tímabili þar sem hann lagði upp tíu mörk.
Leicester hefur lengi sýnt McNeil áhuga en Brendan Rodgers, stjóri liðsins, vill bæta við örvfættum kantmanni.
Wolves hefur áhuga á að fá McNeil en félagið sér hann fyrir sér sem vængbakvörð.
McNeil kom inn í aðallið Burnley fyrir tveimur árum og Sean Dyche, stjóri liðsins, hefur sagt að það verði erfitt að hafna háu tilboði í hann.
Athugasemdir