Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 12. september 2018 22:43
Ívan Guðjón Baldursson
Haraldur Freyr: Vorum skítlélegir í seinni hálfleik
Haraldur í leik með Keflavík.
Haraldur í leik með Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Reynis Sandgerðis, er ánægður með að félagið sé komið aftur upp í 3. deild eftir að hafa lagt Kórdrengi að velli í úrslitakeppni 4. deildar.

Reynir vann fyrri leikinn 2-0 heima og gerði markalaust jafntefli í seinni leiknum í kvöld. Kórdrengir voru manni færri í síðari hálfleik en áttu góðan leik og misnotuðu meðal annars vítaspyrnu.

„Mér fannst þeir betri í seinni hálfleik, við vorum skítlélegir. Þetta hafðist og við unnum viðureignina 2-0 samanlagt," sagði Haraldur við Fótbolta.net að leikslokum.

„Það leit ekki út fyrir að þeir væru manni færri en það eru úrslitin sem skipta máli. Við erum komnir upp, komnir í úrslitaleik og nú er það bara að vinna deildina."

Reynir hefur ekki tapað leik í 4. deildinni á tímabilinu en komst nálægt því í dag, hefði Rúnar Gissurarson fyrirliði ekki varið vítaspyrnu.

„Það var mjög mikilvægt og hefði breytt gangi leiksins ansi mikið. Hann er búinn að vera frábær í sumar og hirti þetta víti."
Athugasemdir
banner
banner
banner