Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. september 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin í dag - Þór/KA gegn Söru Björk
Nær Þór/KA að stríða Wolfsburg?
Nær Þór/KA að stríða Wolfsburg?
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leikið verður í Meistaradeild kvenna í dag, í 32-liða úrslitunum.

Það verður vonandi fjölmennt á Akureyrarvelli þegar Íslandsmeistararnir í Þór/KA fá þýska stórliðið Wolfsburg í heimsókn. Með Wolfsburg leikur landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir.

Sara Björk og stöllur hennar í Wolfsburg komust í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra þar sem þær töpuðu fyrir franska liðinu Lyon. Það er því ljóst að þetta verður mjög erfitt verkefni fyrir Akureyringa.

Leikurinn hefst 16:30 og er hann að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Glódís Perla Viggósdótti er þá í eldlínunni með sænska liðinu Rosengård klukkan 12:00 gegn Ryazan frá Rússlandi. María Þórisdóttir, sem spilar með norska landsliðinu, spilar með Chelsea gegn SFK 2000 frá Bosníu. Faðir Maríu er Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta.

Meistaradeild kvenna - 32 liða úrslit
16:30 Þór/KA - Wolfsburg (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner