Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. september 2021 14:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Leeds og Liverpool: Þeir brasilísku byrja
Alisson byrjar í marki Liverpool.
Alisson byrjar í marki Liverpool.
Mynd: EPA
Það er svo sannarlega áhugaverður leikur í ensku úrvalsdeildinni núna eftir klukkutíma.

Það eru Leeds og Liverpool sem eigast við í eina leik dagsins í deildinni, á Elland Road.

Upphaflega var talið að Brasilíumennirnir í þessum liðum yrðu ekki með, þar sem félögin hleyptu þeim ekki í landsliðsverkefni. Brasilíska fótboltasambandið ákvað að nýta sér reglur FIFA eftir að leikmönnum var ekki hleypt í landsliðsverkefni og setti átta leikmenn í fimm daga bann.

FIFA ákvað hins vegar svo að leikmennirnir færu ekki í bann og eru því Alisson og Fabinho með Liverpool í dag. Raphinha er þá með Leeds.

Daniel James, sem Leeds keypti á dögunum frá Manchester United, byrjar á bekknum.

Byrjunarlið Leeds: Meslier, Ayling, Firpo, Cooper, Llorente, Dallas, Phillips, Harrison, Raphinha, Rodrigo, Bamford.
(Varamenn: Klaesson, Roberts, James, Struijk, Cresswell, Summerville, Klich, McCarron, Shackleton)

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Robertson, Van Dijk, Matip, Fabinho, Thiago, Elliott, Mane, Jota, Salah.
(Varamenn: Kelleher, Konate, Milner, Keita, Gomez, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Jones, Tsimikas)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner