Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. september 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Hvers son er Böddi löpp?
Mynd: Hólar
Út var að koma hjá Bókaútgáfunni Hólum bókin Fótboltaspurningar 2021 eftir þá feðga, Bjarna Þór Guðjónsson og Guðjón Inga Eiríksson.

Fyrri bækur í þessum flokki hafa allar verið mjög vinsælar og sem fyrr kennir margra grasa. Nokkur dæmi:

Hvaða lið leikur heimaleiki sína að Dalhúsum 2?
Hvaða ensk lið eigast við þegar Ernirnir og Karamelludrengirnir keppa?
Hvert er gælunafn Steinþórs Más Auðunssonar markvarðar KA?
Hverrar þjóðar er Raúl Jiménez?
Hvaða lið vann Meistaradeild kvenna 2021 eftir 4-0 sigur á Chelsea í úrslitaleiknum?
Og: Hvers son er Böddi löpp?

Þetta og margt fleira í þessari bráðskemmtilegu bók sem allir knattspyrnuunnendur verða að lesa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner