Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. september 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Kjörísmótin 2021
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjörísmótin vinsælu verða á sínum stað í Hveragerði í vetur.Í 8., 7 og 6.flokkunum er spilaður 5-manna bolti.

Í 5.flokkunum er spilaður 7-manna bolti.Mótin fara fram við frábærar aðstæður inni í Hamarshöllinni en þar er gott gervigras, hlýtt og notalegt.

Mótin fyllast reglulega og því ganga þau lið fyrir sem skrá sig fyrst til leiks.Skráning og frekari upplýsingar veitir Unnar yfirþjálfari á [email protected] eða í síma 865-8930.

Þátttökugjald er 2.500 kr og fá keppendur KJÖRÍS og pizzusneið að móti loknu ásamt medalíu.
Allar sóttvarnarreglur verða hafðar til hliðsjónar við skipulagninu mótanna.

7.nóv - 5.flokkur karla og kvenna
13.nóv - 8.flokkur karla og kvenna
14.nóv - 6. og 7.flokkur kvenna
20.nóv - 7.flokkur karla
21.nóv - 6.flokkur karla
Athugasemdir
banner
banner
banner