Cristiano Ronaldo var aldrei á leið til Manchester City í sumarglugganum að sögn Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United.
Man Utd tryggði sér þjónustu Ronaldo á lokadegi félagaskiptagluggans en hann kom frá Juventus.
Lengi var talað um að Man City væri áfangastaður Ronaldo en Man Utd kom frekar seint inn samkvæmt því sem gekk á.
Ronaldo gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Man Utd í dag er liðið mætir Newcastle.
„Ég held að það hafi aldrei verið í kortunum. Ég tel að það hafi aldrei verið möguleiki," sagði Solskjær.
Ronaldo lék síðast fyrir Man Utd fyrir 12 árum síðan og hefðu skipti til Man City sært marga í rauðu.
Athugasemdir