Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. september 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Bellingham greip bjórinn og fékk sér sopa
Jude Bellingham fannst bjórinn ekkert sérstaklega góður
Jude Bellingham fannst bjórinn ekkert sérstaklega góður
Mynd: EPA
Enskir leikmenn virðast í því að halda á bjórglösum inn á leikvöngum þessa dagana en Jude Bellingham, leikmaður Borussia Dortmund, bættist í hópinn í 4-3 sigri liðsins á Bayer Leverkusen í gær.

Erling Braut Haaland skoraði tvö mörk í leiknum og þegar hann var að fagna sigurmarkinu brutust út mikil læti meðal stuðningsmanna Leverkusen.

Leikmenn Dortmund fögnuðu og þá rigndi bjórglösunum inn á völlinn. Bellingham hoppaði upp á Haaland í fagnaðarlátunum og tókst á ótrúlegan hátt að grípa eitt glasið. Hann skvetti honum yfir sig og kastaði síðan glasinu frá sér.

Aðeins eru nokkrir dagar síðan leikmenn enska landsliðsins gerðu slíkt hið sama gegn Ungverjalandi í undankeppni HM. Þar drukku þeir Declan Rice og Jack Grealish úr glösunum sem var kastað í átt að Raheem Sterling.


Athugasemdir
banner
banner
banner