Jose Mourinho er nú einn allra besti þjálfari sögunnar að sögn goðsagnarinnar Sir Alex Ferguson sem gerði garðinn frægan sem stjóri Manchester United.
Mourinho mun stýra sínum þúsundasta leik á ferlinum á morgun er Roma mætir Sassuolo í ítölsku úrvalsdeildinni.
Mourinho er eitt þekktasta nafnið í bransanum en hann hefur stýrt liðum eins og Chelsea, Manchester United, Inter Milan og Real Madrid.
Hann og Ferguson náðu ekki alltaf vel saman á Englandi en Mourinho fékk hlý orð frá Skotanum fyrir leik helgarinnar.
„Að ná 1000 leikjum sem þjálfari, hann og hans fjölskylda geta verið stolt á þessum degi og það réttilega," sagði Ferguson.
„Að ná þessum áfanga sem stjóri er magnað afrek fyrir Jose, sérstaklega eftir að hafa náð árangri og unnið titla í deildum Evrópu sem og að vinna Meistaradeildina tvisvar."
„Þessi árangur skrifar nafn Jose í sögubækurnar sem einn besti þjálfari sögunnar. Fyrir hönd þjálfarasamtakana þá óska ég honum til hamingju og býð hann velkominn í frægðarhöllina."
Athugasemdir