Núna styttist í það að tölvuleikurinn FIFA 23 komi út, en á hverju ári er gaman að skoða einkunnir sem leikmenn fá.
Þetta árið eru fimm leikmenn jafnir á toppnum með einkunnina 91, fimm sem deila toppsætinu yfir bestu leikmennina í nýjustu útgáfu leiksins.
Það eru þeir Lionel Messi og Kylian Mbappe úr Paris Saint-Germain, Robert Lewandowski úr Barcelona, Karim Benzema úr Real Madrid og Kevin de Bruyne í Manchester City.
Cristiano Ronaldo úr Manchester United og Mohamed Salah eru báðir á meðal leikmanna sem eru með 90.
Hér fyrir neðan má sjá mynd af þeim sem eru með hæstu einkunnirnar í FIFA þetta árið.
Ekki hefur enn verið gefið út hvaða konur eru bestar í nýjustu útgáfu leiksins.
FIFA 23 Highest Ratings ;
— PSG Chief (@psg_chief) September 12, 2022
🇦🇷 Leo Messi 9️⃣1️⃣
🇫🇷 Kylian Mbappe 9️⃣1️⃣
🇧🇷 Neymar Jr 8️⃣9️⃣#PSG🔴🔵✅ #FIFARatings #FIFA23 pic.twitter.com/k4qd1xEOxd
Athugasemdir