mán 12. september 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tonali gerir langtíma samning við AC Milan
Mynd: Getty Images
Hinn 22 ára gamli miðjumaður, Sandro Tonali hefur gert nýjan samning við AC Milan en hann gildir til ársins 2027.

Þessi ítalski miðjumaður gekk til liðs við Milan árið 2020 frá Brescia og hefur verið lykilmaður hjá félaginu, spilað 88 leiki fyrir félagið. Hann var hluti af AC Milan liðinu sem varð deildarmeistari á síðasta tímabili.

Hann á 11 landsleiki fyrir Ítalíu.

Tonali var mikið orðaður við Arsenal í sumar en enska félagið keypti portúgalska miðjumanninn Fabio Vieira í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner