Sergio Aguero, framherji Manchester City, vill ólmur fá landa sinn Lionel Messi til félagsins.
Hann segir þó að það gæti reynst þrautin þyngri fyrir City að kaupa Messi.
„Peningurinn er ekki vandamálið hér," sagði Aguero en í vikunni fór af stað saga um að City myndi borga riftunarverðið í samningi Messi sem hljóðar upp á 268,7 milljónir punda.

„Ég held að Messi og (Cristiano) Ronaldo séu leikmenn sem eru tákn sinna félaga og það er erfitt fyrir þá að fara."
„Ég myndi elska að fá Leo í mitt lið en það virðist vera frekar flókið að láta það ganga."
Athugasemdir