Diego Costa er genginn til liðs við Atletico Madrid á nýjan leik eftir þrjú farsæl ár hjá Chelsea.
Hjá Atletico gengur hann til liðs við marga af sínum fyrrum félögum og er einn þeirra Filipe Luis.
Hjá Atletico gengur hann til liðs við marga af sínum fyrrum félögum og er einn þeirra Filipe Luis.
Luis og Costa unnu spænsku deildina með Atletico 2014 og fóru báðir til Chelsea um sumarið, þar sem þeir unnu ensku deildina.
Costa varð eftir hjá Englandsmeisturunum en Luis náði ekki að festa niður byrjunarliðssæti og sneri aftur til Atletico.
„Costa er besti leikmaður sem ég hef nokkurn tímann spilað með," sagði Luis, sem á rúmlega 30 landsleiki að baki.
„Ég hef séð Juan Valeron, Eden Hazard og Neymar gera magnaða hluti, en Diego Costa er leikmaðurinn sem skilar titlunum."
Athugasemdir