Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. október 2020 21:33
Victor Pálsson
De Bruyne ekki með gegn Íslandi
Icelandair
Mynd: Getty Images
Kevin de Bruyne, leikmaður belgíska landsliðsins, mun ekki spila með liðinu gegn Íslandi á miðvikudag.

Þetta staðfesti belgíska liðið í kvöld en De Bruyne er að glíma við smávægileg meiðsli og mun ekki taka þátt.

Það eru góðar fréttir fyrir íslenska liðið en De Bruyne er eins og flestir vita einn besti miðjumaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Ísland mun spila við Belgíu í Þjóðadeildinni en strákarnir töpuðu gegn Danmörku í gær með þremur mörkum gegn engu.

De Bruyne spilaði 73 mínútur með Belgíu í gær gegn Englandi en þeim leik lauk með 2-1 tapi.

Miðjumaðurinn fann til áður en skiptingin átti sér stað og er nú snúinn aftur til Manchester City sem er hans félag á Englandi.

Athugasemdir
banner
banner
banner