Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. nóvember 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Bamba sleppur með fagnið - Fær ekki gult spjald skráð
Sol Bamba.
Sol Bamba.
Mynd: Getty Images
Sol Bamba, varnarmaður Cardiff, skoraði sigurmark liðsins gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Bamba reif sig úr að ofan þegar hann fagnaði markinu og hefði átt að fá gult spjald.

Martin Atkinson, dómari leiksins, sá ekki atvikið og sleppti því að spjalda Bamba.

Eftir leik greindi Bamba frá því í viðtali að Atkinson hefði spurt hann að því hvort hann hefði farið úr að ofan. Bamba laug þá að svo hefði ekki verið.

Bamba mun ekki fá refsingu eftir leik fyrir fagnið en ekki er hægt að bæta við gulu spjaldi á leikmenn eftir leik samkvæmt reglum enska knattspyrnusambandsins. Hann á því ekki von á frekari refsingu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner