Óttast er að Danny Welbeck, sóknarmaður Arsenal, verði frá út tímabilið eftir að hafa lent í ökklabroti í síðustu viku.
Welbeck meiddist í markalausu jafntefli gegn Sporting Lisbon í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Læknateymið sem hefur séð um Welbeck er sannfært um að hann muni ná fullum bata.
„Ökklinn er brotinn, við verðum án hans mjög lengi," sagði Emery.
Það mun skýrast í vikunni hversu lengi Welbeck verður frá og hvort hann þurfi að fara í aðra aðgerð á ökklanum.
Athugasemdir