Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. nóvember 2021 11:00
Elvar Geir Magnússon
Brozovic hlær að kostulegu sjálfsmarki sínu
Mynd: Getty Images
Marcelo Brozovic, miðjumaður Inter, gat séð spaugilegu hliðina á sjálfsmarkinu sem hann skoraði í leik með Króatíu í gær.

Króatía vann Möltu 7-1 svo það var auðvelt fyrir Brozovic að gera grín að sjálfum sér. Hann birti sjálfsmarkið á Instagram.

Brozovic sparkaði boltanum í andlitið á sjálfum sér og af andlitinu skaust boltinn í markið.

Nicolo Barella skrifar ummæli við markið og segir það fallegasta mark sem Brozovic hefur skorað á ferlinum.


Athugasemdir
banner
banner