Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. nóvember 2021 12:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið U21 í Liechtenstein: Margar breytingar
Icelandair
Kristian Nökkvi byrjar
Kristian Nökkvi byrjar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valgeir spilar sinn fyrsta leik með u21
Valgeir spilar sinn fyrsta leik með u21
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið íslenska U21 árs landsliðsins hefur verið tilkynnt. Liðið mætir Liechtenstein klukkan 14:00 í Liechtenstein.

Davíð Snorri Jónasson gerir sex breytingar á liðinu sem lék gegn Portúgal í síðasta mánuði.

Karl Friðleifur Gunnarsson, Valgeir Valgeirsson, Hákon Arnar Haraldsson, Kristian Nökkvi Hlynsson og Brynjólfur Andersen Willumsson koma inn í liðið. Valgeir er að spila sinn fyrsta leik með U21 landsliðinu.

Sævar Atli Magnússon, Kristall Máni Ingason, Viktor Örlygur Andrason, Bjarki Steinn Bjarkason og Jökull Andrésson taka sér sæti á bekknum. Ísak Óli Ólafsson er með A-landsliðinu.

Samkvæmt vef UEFA er Ísland í 4-3-3 eins og sjá má hér að neðan.



Byrjunarlið:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Valgeir Valgeirsson
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Kolbeinn Þórðarson
9. Brynjólfur Willumsson (f)
10. Kristian Nökkvi Hlynsson
15. Karl Friðleifur Gunnarsson
16. Hákon Arnar Haraldsson
17. Atli Barkarson
21. Valgeir Lunddal Friðriksson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner