Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. nóvember 2021 11:30
Elvar Geir Magnússon
Er ferli Aguero lokið?
Aguero dvaldi á sjúkrahúsi í tvo daga.
Aguero dvaldi á sjúkrahúsi í tvo daga.
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero er sagður íhuga að leggja skóna á hilluna eftir að hafa greinst með hjartsláttartruflanir.

Hjartavandamál argentínska sóknarmannsins er flóknara en fyrst var talið.

Aguero er 33 ára og gekk í raðir Barcelona frá Manchester City í sumar.

Aguero fann fyrir verk við brjóstið í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Börsunga, hann fór af velli í fyrri hálfleik og hefur ekki spilað síðan.

Aguero var sagt að hvílast í þrjá mánuði en nú er útlit fyrir að vandamálið sé alvarlegra en fyrst var talið.
Athugasemdir
banner
banner