Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 12. nóvember 2021 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fanndís í sínu besta formi þrýstir vel á sæti í hópnum
Icelandair
Fanndís Friðriksdóttir
Fanndís Friðriksdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fanndís Friðriksdóttir hefur ekki verið viðloðin íslenska landsliðið frá því hún varð ólétt á síðasta ári.

Þorsteinn Halldórsson tilkynnti landsliðshópinn fyrir komandi verkefni í dag og kom inn á Fanndísi þegar hann var spurður út í leikmann sem ekki er í hópnum.

Svör Steina út í leikmenn sem ekki hafa verið valdir:
Slatti af leikmönnum sem ég hef ekki valið hingað til

Þorsteinn sagðist ekki hafa rætt við Fanndísi um mögulega endurkomu í landsliðið. En er það eitthvað sem hann er opinn fyrir því að skoða?

„Að sjálfsögðu skoða ég alla góða leikmenn sem ég tel að geti nýst okkur. Ef Fanndís kemst í sitt besta form þá þrýstir hún vel á að komast í hópinn," sagði Steini.
Athugasemdir
banner
banner
banner