Jamie Carragher segir að Steven Gerrard fái tækifæri hjá Aston Villa til að sýna það og sanna að hann eigi skilið að fá stjórastarfið hjá Liverpool í framtíðinni.
Margir spá því að Gerrard muni taka við Liverpool þegar samningur Jurgen Klopp rennur út 2024.
Margir spá því að Gerrard muni taka við Liverpool þegar samningur Jurgen Klopp rennur út 2024.
„Ég get lofað ykkur því að Steven Gerrard vill verða ráðinn stjóri Liverpool á eigin verðleikum. Stuðningsmenn Liverpool vilja að hann vinni fyrir því að verða stjóri, verði ekki bara ráðinn því það er rómantísk heimkoma," segir Carragher.
„Þegar Klopp fer þá mun Liverpool bara ráða besta manninn í starfið. Tengsl hans við félagið virka sem kostur."
„Þetta er ein mest spennandi ráðning Villa í mörg ár og það er snilld fyrir ensku úrvalsdeildina að fá ofurstjörnu eins og Gerrard er á hliðarlínuna."
Athugasemdir