Framherjinn Gunnar Örvar Stefánsson er kominn heim í Hauka samkvæmt heimildum Fótbolta.net en hann kemur frá KA.
Samningur hans við Akureyrar liðið rann út eftir tímabilið og hefur hann ákveðið að snúa aftur heim í Hauka. Hann lék með Hafnarfjarðar liðinu upp alla yngriflokkana en fór í KA í 2. flokki.
Hann hefur leikið með Þór, Magna og var svo á láni hjá Dalvík/Reyni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 4 mörk í 14 leikjum.
Atli Sveinn Þórarinsson tók við þjálfun Hauka eftir síðasta tímabil en hann er uppalinn í KA.
Athugasemdir