Patrik Sigurður Gunnarsson glímir við meiðsli og verður ekki í íslenska landsliðshópnum í leiknum gegn Norður-Makedóníu á sunnudag.
Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið kallaður inn í hans stað en hann varði mark U21 árs landsliðsins gegn Liechtenstein í dag.
Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið kallaður inn í hans stað en hann varði mark U21 árs landsliðsins gegn Liechtenstein í dag.
Patrik verður 21 árs á mánudag og Hákon varð tvítugur í síðasta mánuði. Patrik er leikmaður Brentford á Englandi en er á láni hjá norska félaginu Viking til áramóta.
Hákon Rafn er uppalinn hjá Gróttu en gekk í raðir Elfsborg í sumar og lék nokkra leiki með aðalliði félagsins í haust. Brynjar Atli Bragason hefur verið kallaður inn í U21 árs landsliðshópinn. Ísland á leik gegn Grikklandi á þriðjudag.
Búast má við því að Elías Rafn Ólafsson verji mark A-landsliðsins. gegn Norður-Makedóníu og Jökull Andrésson verji mark U21 árs liðsins gegn Grikklandi.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir