Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 12. nóvember 2021 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu vítið: Jorginho skaut hátt yfir
Mynd: Getty Images
Ítalía og Sviss gerðu 1-1 jafntefli í C-riðli undankeppni HM í kvöld.

Sviss komst yfir með glæsilegu marki frá Silvan Widmer. Giovanni Di Lorenzo jafnaði metin fyrir Ítalíu.

Staðan var 1-1 í hálfleik en Ítalía fékk vítaspyrnu á loka mínútu venjulegs leiktíma og Jorginho miðjumaður Chelsea og ítalska landsliðsins fór á punktinn. Hann skaut hátt yfir markið en þetta var þriðja vítið í röð sem hann misnotar fyrir ítalska landsliðið. Vítið má sjá með því að smella hér.

Ítalía og Sviss berjast um efsta sætið í riðlinum í loka umferðinni en eftir leik kvöldsins eru liðin með jafn mörg stig en Ítalía fyrir ofan á markatölu. Ítalía fær Norður-Írland og Sviss leikur gegn Búlgaríu í loka umferðinni.

Athugasemdir
banner
banner