Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. nóvember 2021 12:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Fréttablaðið 
Vanda á sömu launum og Guðni
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vanda Sigurgeirsdóttir samdi við stjórn KSÍ um laun og er hún á sömu launum og Guðni Bergsson var á.

Þetta kemur fram í skriflegu svari til Fréttablaðsins.

Vanda er formaður yfir bráðabirgðastjórn KSÍ sem situr fram til febrúar þegar ársþing sambandsins fer fram. Hún ætlar að sækjast eftir endurkjöri.

„Já, laun formanns eru birt með uppgjöri ársreiknings á ársþingi KSÍ. Laun Vöndu eru þau sömu og forvera hennar í starfi," segir Ómar Smárason starfsmaður KSÍ í svari til Fréttablaðsins.

Vanda er því með 1.283.000 krónur á mánuði auk bifreiðahlunninda að hámarki 150 þúsund krónur á mánuði.
Athugasemdir
banner
banner