Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. desember 2018 15:32
Magnús Már Einarsson
750 ársmiðar til viðbót í sölu á morgun
Icelandair
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Eftir góðan gang í ársmiðasölu á leiki Íslands í undankeppni EM hefur KSÍ ákveðið að bæta 750 miðum við söluna.

1000 miðar fóru í sölu í gær og þeir seldust upp á tveimur klukkutímum.

Miðaasalan hefst á ný klukkan 12:00 á morgun á tix.is en þá fara 750 miðar í sölu.

Miðasalan verður opin til 8. febrúar, eða þangað til að uppselt verður.

Ekki verður bætt við fleiri miðum en þeim er fara í sölu á morgun.

Heimaleikir Íslands
Laugardagur 8. júní Ísland - Albanía (13:00)
Þriðjudagur 11. júní Ísland - Tyrkland (18:45)
Laugardagur 7. september Ísland - Moldavía (16:00)
Föstudagur 11. október Ísland - Frakkland (18:45)
Mánudagur 14. október Ísland - Andorra (18:45)
Athugasemdir
banner
banner