banner
   mið 12. desember 2018 22:13
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Vísir 
Arnór „hélt sýningu fyrir alla fjölskylduna"
Mynd: Getty Images
Arnór Sigurðsson átti draumaleik er CSKA Moskva lagði Real Madrid að velli á Santiago Bernabeu fyrr í kvöld.

Arnór lagði fyrsta mark leiksins upp og skoraði það síðasta í 0-3 sigri og var faðir hans, Sigurður Þór Sigursteinsson, að springa úr stolti.

Sigurður, sem er fyrrverandi leikmaður ÍA og núverandi framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar félagsins, greindi frá því með myndbirtingu á Instagram að stór hluti fjölskyldunnar hafi verið á leiknum.

Myndin hefur fengið góðar undirtektir enda magnað afrek hjá Arnóri sem er fæddur 1999 og búinn að stimpla sig rækilega inn í byrjunarlið CSKA ásamt Herði Björgvini Magnússyni.

„Magnað kvöld og þvílíkur leikur hjá drengnum. Hélt sýningu fyrir alla fjölskylduna, 16 manns, er að rifna úr stolti," skrifaði Sigurður með myndinni.

Fjölskyldan sjálf er sýnileg hér fyrir neðan, í tísti frá rússneskum aðdáanda CSKA og íslensku strákanna í liðinu.






Athugasemdir
banner
banner
banner