Dimitar Berbatov, fyrrum framherji Manchester United, vill að liðið kaupi Harry Maguire varnarmann Leicester þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Manchester United reyndi að fá Maguire síðastliðið sumar en án árangurs.
Manchester United reyndi að fá Maguire síðastliðið sumar en án árangurs.
„Þeir þurfa einhvern sem er öruggur með boltann og bognar ekki undir pressu þegar einhver sækir á þig," sagði Berbatov.
„Þú þarft að vera rólegur, geta sent boltann á miðjunni og haldið honum. Ég held að þeir þurfi þannig leikmann."
„Ég var mjög hrifinn af Harry Maguire á HM því hann var svo rólegur á boltann og ég kann vel að meta þann eiginleika hjá varnarmanni því það hjálpar öllu liðinu."
Athugasemdir