Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. desember 2018 17:09
Magnús Már Einarsson
Matip frá í sex vikur - Liverpool bara með tvo heila miðverði
Joel Matip í leik gegn Tottenham.
Joel Matip í leik gegn Tottenham.
Mynd: Getty Images
Joel Matip, varnarmaður Liverpool, verður frá keppni næstu sex vikurnar eftir að hafa viðbeinsbrotnað undir lok leiks gegn Napoli í gær.

Matip er á leið í aðgerð og missir að minnsta kosti af átta leikjum en þar á meðal eru leikurinn gegn Manchester United á sunnudag og gegn Arsenal og Manchester City.

Matip meiddist eftir skallaeinvígi við Kalidou Koulibaly undir lok leiksins í gær og í kjölfarið fór hann á sjúkrahús.

Joe Gomez verður einnig frá keppni fram í lok janúar og því er Liverpool einungis með tvo miðverðir fyrir næstu vikurnar en það eru Virgil van Dijk og Dejan Lovren.

Að auki fór hægri bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold meiddur af velli hjá Liverpool undir lok leiks í gær og óvíst er með þátttöku hans gegn Manchester United á sunnudaginn.

Smelltu hér til að hlusta á Liverpool umræðu í Miðjunni

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner