Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. desember 2018 13:03
Magnús Már Einarsson
Óttar Magnús og Gary Martin orðaðir við Val
Hver fyllir skarð Patrick Pedersen?
Óttar Magnús og Gary Martin fagna marki með Víkingi árið 2016.  Fer annar þeirra í Val?
Óttar Magnús og Gary Martin fagna marki með Víkingi árið 2016. Fer annar þeirra í Val?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslandsmeistarar Vals hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku en félagið seldi í dag markahrókinn Patrick Pedersen til Sheriff Tiraspol í Moldavíu. Valur spilaði við Sheriff í Evrópudeildinni í sumar og þar vakti Patrick athygli félagsins.

Patrick hefur skorað 47 mörk í 72 leikjum í Pepsi-deildinni með Val en hann varð markakóngur á síðasta tímabili með 17 mörk.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net gæti Valur reynt að krækja í Gary Martin framherja Lilleström til að fylla skarð Patrick. Gary hefur áhuga á að snúa aftur í Pepsi-deildina en hann staðfesti á dögunum að Stjarnan hefði sýnt sér áhuga.

Gary er væntanlega á förum frá Lilleström en hann hefur spilað með ÍA, KR og Víkingi R. á Íslandi á ferli sínum.

Óttar Magnús Karlsson, framherji Molde, hefur æft með Val undanfarna daga samkvæmt frétt 433.is í dag. Óttar Magnús var á láni hjá Trelleborg í Svíþjóð í ár en hann gæti verið á leið aftur heim í Pepsi-deildina.

Framherjinn Garðar Bergmann Gunnlaugsson kom til Vals frá ÍA á dögunum en liðið hefur líka misst Tobias Thomsen til KR frá síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner