Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. desember 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Sterling valinn leikmaður mánaðarins
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling hefur verið útnefndur leikmaður nóvember mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Sterling hjálpaði Manchester City að vinna alla þrjá deildarleiki sína í nóvember gegn Southampton, Manchester United og West Ham.

Sterling skoraði þrjú mörk í þessum leikjum og lagði upp þrjú til viðbótar.

Samtals hefur Sterling skorað átta mörk í þrettán leikjum í úrvalsdeildinni á tímabilinu og lagt upp sjö til viðbótar.
Athugasemdir
banner
banner