Heimild: BBC.com
Hinn 17 ára gamli Rhian Brewster var fluttur á spítala vegna meiðsla sem hann hlaut í U-23 leik með Liverpool í gærkvöldi.
Brewster meiddist á ökkla þegar hann lenti illa eftir skallaeinvígi í leik gegn U-23 ára liði Manchester City í uppbótartíma fyrri hálfleiks. City vann leikinn 3-2.
„Við óttumst það versta," sagði Neil Critchley þjálfari U-23 ára liðs Liverpool. „Þetta lítur ekki vel út, hann lenti illa á ökklanum. Hann er að fara upp á spítala en ég vil ekki vera með of miklar getgátur," sagði Critchley ennfremur.
Rhian Brewster var markahæstur á Heimsmeistaramóti U-17 ára landsliða í október sem England vann.
Athugasemdir