Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 13. janúar 2022 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmót kvenna: Íslandsmeistararnir skoruðu tólf gegn KR
Ásdís Karen skoraði þrjú og Mist skoraði tvö fyrir Val
Ásdís Karen skoraði þrjú og Mist skoraði tvö fyrir Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 12 - 0 KR
Mörk Vals: Ásdís Karen Halldórsdóttir 3, Sólveig Jóhannesdóttir Larsen 3, Bryndís Arna Níelsdóttir 2, Ída Marín Hermannsdóttir 2, Mist Edvardsdóttir 2.

Íslandsmeistarar Vals byrja Reykjavíkurmótið með hvelli en liðið kjöldró KR, 12-0, á Origo-vellinum í kvöld.

Ásdís Karen Halldórsdóttir og Sólveig Jóhannesdóttir Larsen voru báðar með þrennu í leiknum en hin sex mörkin skiptust á milli þriggja leikmanna.

Bryndís Arna Níelsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Mist Edvardsdóttir skoruðu allar tvö mörk í algerum einstefnuleik.

Valur mætir Fylki í næsta leik á þriðjudaginn en KR spilar við Fjölni í Egilshöllinni.
Athugasemdir
banner
banner