Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 13. janúar 2023 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Áhugi á Mikael frá Hollandi og Ítalíu
Mynd: Getty Images

Hinn bráðefnilegi Mikael Egill Ellertsson hefur gert flotta hluti með Spezia í Serie A þar sem hann kemur oft inn af bekknum undir lok leikja.


Mikael Egill hefur staðið sig vel með Spezia en félagið er aðeins einu sæti fyrir ofan fallbaráttuna og hefur því ákveðið að fjárfesta í nýjum leikmönnum í tilraun til að forða sér frá falli.

Þetta mun fækka tækifærum Mikaels á vellinum og eru stjórnendur Spezia að skoða að lána hann út svo hann fái mikilvægan spiltíma.

Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum hafa Sparta Rotterdam og Roda JC frá Hollandi mikinn áhuga á Mikael. Rotterdam er í óvæntri Evrópubaráttu í efstu deild á meðan Roda er í umspilsbaráttu í næstefstu deild.

Hollensku félögin sýndu Mikael áhuga síðasta sumar en Spezia neitaði að lána miðjumanninn tvítuga út.

Þar að auki hafa ónefnd félög úr ítölsku B-deildinni áhuga á Mikael og gæti hann því fengið dýrmætar mínútur á seinni hluta tímabils, hvort sem það verður í Serie B eða Hollandi.

Mikael, sem verður 21 árs í mars, á tíu A-landsleiki að baki fyrir Ísland og hefur komið við sögu í ellefu Serie A leikjum það sem af er tímabils.


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 26 5 1 77 17 +60 83
2 Milan 32 21 6 5 63 37 +26 69
3 Juventus 32 18 9 5 45 24 +21 63
4 Bologna 32 16 11 5 45 25 +20 59
5 Roma 31 16 7 8 56 35 +21 55
6 Atalanta 31 15 6 10 57 36 +21 51
7 Napoli 32 13 10 9 50 40 +10 49
8 Lazio 32 15 4 13 41 35 +6 49
9 Torino 32 11 12 9 31 29 +2 45
10 Fiorentina 31 12 8 11 43 36 +7 44
11 Monza 32 11 10 11 34 41 -7 43
12 Genoa 32 9 12 11 35 39 -4 39
13 Lecce 32 7 11 14 27 48 -21 32
14 Cagliari 32 7 10 15 34 54 -20 31
15 Verona 32 6 10 16 30 44 -14 28
16 Udinese 31 4 16 11 30 47 -17 28
17 Empoli 32 7 7 18 25 48 -23 28
18 Frosinone 32 6 9 17 40 63 -23 27
19 Sassuolo 32 6 8 18 39 62 -23 26
20 Salernitana 32 2 9 21 26 68 -42 15
Athugasemdir
banner
banner
banner