Massimiliano Allegri gaf kost á sér í viðtal eftir stórt 5-1 tap Juventus gegn Napoli í toppslag ítalska boltans í kvöld.
Hann sér enga ástæðu til að vera dramatískur þrátt fyrir að Juve sé núna tíu stigum eftir Napoli í titilbaráttunni.
„Í fyrsta lagi þá verðum við að óska Napoli til hamingju með þessa frammistöðu. Okkur leið eins og við værum enn með í leiknum þegar við komum í síðari hálfleik en þá fóru bara öll skotin þeirra í netið. Svona getur komið fyrir, þetta eru bara þrjú stig eins og úr hverjum öðrum leik," sagði Allegri.
„Við vorum ekki með nægilega mikla orku fyrir þennan leik og heppnin var ekki með okkur í liði. Við áttum skilið að tapa í kvöld og þurfum að gera betur í næsta leik. Það eru ríkar ástæður fyrir því að Napoli er á toppinum og þeir sýndu þær.
„Leiðin framundan er enn löng og það er mikið af stigum í húfi. Við megum ekki missa haus núna. Það er engin ástæða til að detta í eitthvað þunglyndi eftir eitt tap, alveg eins og það var engin ástæða til að búast við einhverjum kraftaverkum eftir átta sigra í röð. Þetta er bara tap og við höldum áfram okkar vegferð."
Napoli er með tíu stiga forystu eftir þennan sigur og er stefnan sett á fyrsta Ítalíumeistaratitilinn í rúmlega 30 ár, eða síðan Napoli vann deildina 1990 með Diego Armando Maradona í fararbroddi. Forysta Napoli getur minnkað niður í níu eða sjö stig þegar Milan heimsækir fallbaráttulið Lecce á morgun.
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Inter | 32 | 26 | 5 | 1 | 77 | 17 | +60 | 83 |
2 | Milan | 32 | 21 | 6 | 5 | 63 | 37 | +26 | 69 |
3 | Juventus | 33 | 18 | 10 | 5 | 47 | 26 | +21 | 64 |
4 | Bologna | 32 | 16 | 11 | 5 | 45 | 25 | +20 | 59 |
5 | Roma | 31 | 16 | 7 | 8 | 56 | 35 | +21 | 55 |
6 | Lazio | 33 | 16 | 4 | 13 | 42 | 35 | +7 | 52 |
7 | Atalanta | 31 | 15 | 6 | 10 | 57 | 36 | +21 | 51 |
8 | Napoli | 32 | 13 | 10 | 9 | 50 | 40 | +10 | 49 |
9 | Torino | 32 | 11 | 12 | 9 | 31 | 29 | +2 | 45 |
10 | Fiorentina | 31 | 12 | 8 | 11 | 43 | 36 | +7 | 44 |
11 | Monza | 32 | 11 | 10 | 11 | 34 | 41 | -7 | 43 |
12 | Genoa | 33 | 9 | 12 | 12 | 35 | 40 | -5 | 39 |
13 | Cagliari | 33 | 7 | 11 | 15 | 36 | 56 | -20 | 32 |
14 | Lecce | 32 | 7 | 11 | 14 | 27 | 48 | -21 | 32 |
15 | Verona | 32 | 6 | 10 | 16 | 30 | 44 | -14 | 28 |
16 | Udinese | 31 | 4 | 16 | 11 | 30 | 47 | -17 | 28 |
17 | Empoli | 32 | 7 | 7 | 18 | 25 | 48 | -23 | 28 |
18 | Frosinone | 32 | 6 | 9 | 17 | 40 | 63 | -23 | 27 |
19 | Sassuolo | 32 | 6 | 8 | 18 | 39 | 62 | -23 | 26 |
20 | Salernitana | 32 | 2 | 9 | 21 | 26 | 68 | -42 | 15 |