Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 13. janúar 2023 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Getum keypt nýja leikmenn í draumalandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er ekki bjartsýnn á það að fá nýja leikmenn inn til félagsins í janúarglugganum.


Það eru 28 leikmenn í hópi hjá Liverpool og eru sjö þeirra meiddir. Þá er Stefan Bajcetic ekki talinn með því hann er partur af unglingaliðinu, en hann hefur einnig verið að glíma við meiðsli.

Klopp svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir leik liðsins á morgun á útivelli gegn Brighton. 

„Ég býst ekki við að fá nýja leikmenn inn. Ástandið er eins og það er. Ég er ekki mikið að velta mér upp úr þessu nema bara þegar þið spyrjið mig. Ég er þjálfari liðsins og starf mitt snýst um að ná því besta sem ég get úr þeim leikmönnum sem ég hef," svaraði Klopp þegar hann var spurður út í væntanleg kaup í janúar.

„Ég er sáttur með byrjunarliðin sem ég tefli fram en þegar við förum að rótera á milli leikja þá er ekki mikið af auka valmöguleikum nema bara strákar úr ungllingaliðinu.

„Við getum ekki leyst öll vandamálin í glugganum. Í draumalandi gætum við bara keypt inn nýja leikmenn núna í janúar en ég býst ekki við að það gerist."

Gengi Liverpool hefur ekki verið nægilega gott á tímabilinu og er liðið óvænt í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, ellefu stigum eftir Manchester City.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner