Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 13. janúar 2023 14:44
Elvar Geir Magnússon
Kulusevski klár í Norður-Lundúnaslaginn
Dejan Kulusevski.
Dejan Kulusevski.
Mynd: Getty Images
„Meiðslastaðan er að verða betri," segir Antonio Conte, stjóri Tottenham. Á sunnudaginn fær liðið Arsenal í heimsókn í Norður-Lundúnaslagnum.

„Richarlison og Rodrigo Bentancur færast nær og Dejan Kulusevski er klár í að spila. Við viljum ekki taka neina áhættu og það er mikilvægt að hafa þolinmæði."

Conte var spurður úr í janúargluggann.

„Varðandi leikmannamarkaðinn þá vil ég ekki segja mikið. Núna er ég algjörlega með einbeitingu á leiknum á sunnudag. Félagið sér um það sem er í gangi á markaðnum."

Tottenham er í fimmta sæti deildarinnar en grannar þeirra og erkifjendur sitja í toppsætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner