Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. janúar 2023 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Kristian Nökkvi fékk beint rautt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Jong Ajax sem heimsótti De Graafschap í hollensku B-deildinni í kvöld.


De Graafschap var einu marki yfir þegar Kristian Nökkvi fékk beint rautt spjald fyrir heldur litlar sakir á 42. mínútu leiksins. Atvikið er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Heimamenn héldu forystunni gegn tíu leikmönnum Ajax og á 64. mínútu fékk hinn 18 ára gamli Neal Viereck beint rautt spjald aðeins nokkrum sekúndum eftir innkomu sína af bekknum.

Níu leikmenn Ajax réðu ekki við De Graafschap og urðu lokatölur 3-0.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner