Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. janúar 2023 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu glæsilega markvörslu Martínez gegn Leeds
Mynd: Getty Images

Aston Villa náði sér í dýrmæt stig með 2-1 sigri á Leeds United í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.


Aston Villa tók forystuna í upphafi leiks en gestirnir frá Leeds brugðust við með að taka algjöra stjórn á leiknum.

Leeds fékk urmul færa og nokkur dauðafæri en boltinn rataði ekki í netið. Emiliano Martínez stóð sig vel á milli stanganna og átti eina stórkostlega markvörslu sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Þá kom Leeds boltanum í netið en markið ekki dæmt vegna rangstöðu og þá vildu gestirnir einnig fá dæmda vítaspyrnu þegar Rodrigo Moreno var rifinn niður innan vítateigs, en VAR ákvað ekki að skerast í leikinn.

Sjáðu markvörslu Martinez undir lok fyrri hálfleiks
Sjáðu þegar Leeds vildi fá vítaspyrnu


Athugasemdir
banner
banner