Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 13. janúar 2023 19:45
Ívan Guðjón Baldursson
Wolves að kaupa Pablo Sarabia frá PSG
Sarabia fór með spænska landsliðinu á HM í Katar.
Sarabia fór með spænska landsliðinu á HM í Katar.
Mynd: EPA

Úlfarnir eru að styrkja hópinn sinn í tilraun til að forða sér frá fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar sem fyrst. Þeir eru búnir að ganga frá félagsskiptum Matheus Cunha sem er kominn frá Atletico Madrid og þá er Pablo Sarabia á leiðinni frá PSG.


Sarabia er þrítugur kantmaður sem var algjör lykilmaður hjá Sevilla áður en hann var keyptur til PSG sumarið 2019. Hann fékk lítinn spiltíma í París og fann aldrei taktinn en var lánaður til Sporting CP á síðustu leiktíð og skoraði þar 21 mark í 45 leikjum.

Hann á 9 mörk í 26 landsleikjum fyrir Spán og borgar Wolves ekki nema um 5 milljónir punda fyrir þennan öfluga leikmann, sem á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við PSG. Þessi upphæð getur hækkað með árangurstengdum aukagreiðslum.

Ef Úlfunum tekst að landa Sarabia gætu þetta reynst ein af betri kaupum janúargluggans, en þeir eru einnig að krækja í Mario Lemina og Joao Gomes á næstu dögum.

Úlfarnir eru með 14 stig eftir 18 umferðir í ensku úrvalsdeildinni og aðeins 11 mörk skoruð.

Nýr stjóri liðsins, Julen Lopetegui, á erfitt verk fyrir höndum en fær augljóslega stuðning frá eigendunum.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 9 3 75 32 +43 75
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 33 15 6 12 69 52 +17 51
7 Man Utd 33 15 6 12 47 48 -1 51
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 34 12 8 14 46 53 -7 44
12 Bournemouth 34 11 10 13 48 60 -12 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 9 10 15 42 56 -14 37
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 10 9 15 34 48 -14 31
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 8 23 31 88 -57 17
Athugasemdir
banner
banner