Manchester City átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Basel að velli í Meistaradeildinni í kvöld.
Ilkay Gundogan kom City yfir með skalla eftir hornspyrnu Kevin de Bruyne á 14. mínútu. Bernardo Silva og Sergio Aguero bættu við mörkum áður en fyrri hálfleikurinn var úti.
Gundogan skoraði fjórða markið og annað mark sitt í upphafi seinni hálfleiks og þar við sat.
City er svo gott sem komið áfram eftir þennan leik.

Stuart Brennan hjá Manchester Evening News gat verið gjafmildur í einkunnagjöf sinni í kvöld. Hann gaf þremur leikmönnum City 9 í einkunn, en einkunnagjöfin er í heild sinni hér að neðan.
Man City: Ederson 7, Walker 8, Kompany 7, Otamendi 7, Delph 8, De Bruyne 8, Fernandinho 8, Gundogan 9, Bernardo Silva 9, Aguero 9, Sterling 7. (Varamenn: Sane 6, David Silva 6)
Athugasemdir