Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. febrúar 2018 09:30
Ingólfur Stefánsson
Harry Kane hlakkar til að mæta Chiellini
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Harry Kane segist hlakka til að mæta hinum magnaða varnarmanni Giorgio Chiellini þegar Tottenham og Juventus eigast við í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Kane mætti Chiellini fyrst þegar hann spilaði sinn fyrsta heila landsleik fyrir England gegn Ítalíu árið 2015.

Kane hlakkar til þeirrar áskorunnar sem það verður að mæta honum aftur.

„Hann er ótrúlegur leikmaður. Ég man þegar ég mætti honum fyrst þá tæklaði hann mig í byrjun leiksins og ég var með dauðann fót í 10 mínútur. Það var alvöru móttaka í landsliðsfótbolta."

„Við vitum hversu góða vörn og markvörslu þeir hafa en við erum með góða sókn og höfum skorað mikið í vetur."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner