Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. febrúar 2018 07:30
Ingólfur Stefánsson
Messi efast um að hann og Ronaldo verði vinir
Mynd: Getty Images
Lionel Messi leikmaður Barcelona segist efast um að hann muni nokkurn tímann verða náinn Cristiano Ronaldo leikmanni Real Madrid.

Leikmennirnir hafa verið tveir bestu leikmenn heims undanfarinn áratug og mikið hefur verið fjallað um samband þeirra.

Messi segir að honum þyki ólíklegt að á milli þeirra verði vinátta þar sem þeir hittist sjaldan.

„Ég veit ekki hvort við verðum vinir í framtíðinni. Vinátta myndast þegar einstaklingar eyða tíma saman og kynnast hvor öðrum. Við eigum ekki í neinu sambandi, aðallega vegna þess að við hittumst einungis á verðlaunaafhendingum."

„Það eru einu skiptin sem við tölum saman. Það er allt í góðu á milli okkar en líf okkar eru óháð hvor öðru."


Báðir leikmennirnir hafa unnið Gullhnöttinn fimm sinnum sem er met.

Athugasemdir
banner
banner
banner